Fólk á Vesturströndinni á sér greinilega meiri frítíma en við á Austurströndinni… A.m.k þá hefur Ásdísin mín í Santa Barbara lítið annað að gera en að "skora" á mig í leik. Ég á sem sagt að nefna 5 sérkennilega ávana sem ég hef áunnið mér….
Verst að ekki var "skorað" á mig fyrr því að þegar ég var yngri var ég með endalaust marga ávana og var mjög hjátrúafull. Slíkt hefur (sem betur fer?) elst af mér hin síðari ár… Allavega, hér eru 5 "ávanar" sem ég man eftir í fljótu bragði….
- Ég tala hratt og ég tala mikið! Sérstaklega lenda bestu vinir mínir og fjölskylda í því að hlusta á mig. Það versta við fólk (eins og mig) sem talar svona út í eitt að það hefur sjaldnast neitt merkilegt að segja…..
- Ég fikta í hárinu á mér þegar ég er að hugsa! Ekki halda samt að ég sé alltaf að hugsa eitthvað merkilegt, stundum er ég bara að skipuleggja næstu helgi….
- Ég er með hryllilega skipulagsáráttu og er því alltaf mætt rosalega tímanlega! Þetta er auðvitað stundum kostur en þó ekki alltaf, ég er t.d. oftast mætt fyrst í tímana í skólanum og fólk sem ég ætla að hitta fær oft samviskubit við það að láta mig sitja og bíða eftir þeim…
- Mín versta martröð er að gleyma hlutum svo að ég tjékka vanalega svona 10 sinnum að lyklum/síma/veski/snyrtidóti áður en ég fer út úr húsi! Ég tek það fram að ég þessi ávani er nýr, þegar ég bjó á Íslandi var ég nefnilega alltaf að læsa mig úti en ég vil alveg EKKI lenda í því hér í USA…
- Ég stilli mér víst alltaf eins upp á myndum (og þá sérstaklega ef ég er í glasi!). Og í þau fáu skipti sem að ég myndast öðruvísi læt ég alltaf “taka aðra” mynd! Ef að einhver trúir mér ekki þá er lítið mál að skoða myndirnar á myndasíðunni minni…
Kannski ekki mjög "djúsí" listi en allavega…
Sakna ykkar allra! Endilega bjallið í mig á föstudaginn eða um helgina, þá verð ég heima.
Ég stefni á að setja inn myndir fljótlega.
Þóra
p.s. ég skora á alla sem að lesa þetta og eru með heimasíðu 
hehe mér finnst flest nú alveg eðlilegt:) Skil hins vegar ekki þessa ofurstundvísi, ég er alltaf of sein!