Ég vil 15% vexti!

Ég er farin að halda að ég sé eina stelpan í Stevens. Í hagverkfræði er ég til dæmis eina stelpan. Fyrirlesarinn er annars ágætur en finnst, eins og öllum bandaríkjamönnum, mjög gaman að segja frá sjálfum sér.

Gaurinn er milljónamæringur og varð fyrst ríkur af húsnæðisbraski. Afi hans keypti handa honum hús í Hoboken fyrir 50 árum þegar Hoboken var subbulegt "dópbæli". Gaurinn leigði húsið út í mörg ár en eftir að Hoboken varð "hip&kúl" og húsnæðisverð þar orðið jafn dýrt og í "Mid-Manhattan" seldi hann það og græddi massa mikinn pening.

Stundum þarf ég þó að bíta í tunguna á mér í þessum tímum. Fólk sem talar mikið á það nefnilega stundum til að segja algjöra vitleysu og hefur meðal annars komið fram í þessum tímum að Bandaríkin séu það land þar sem að launajafnrétti er mest…. *hóst*

Oftast kennir hagverkfræðikennarinn okkur þó eitthvað gagnlegt. Til dæmis sagði hann okkur í gær að ef við legðum inn $10.000 í banka í dag og myndum ávaxta peninginn í 50 ár á 15% vöxtum þá gætu barnabörnin okkar lifað á vöxtunum það sem eftir væri!

Mér finnst þetta mjög sniðugt og hef hugsað mér að gera þetta!

Eina sem mig vantar núna eru $10.000 og banki sem vill gefa mér 15% vexti…..

Þóra

3 Responses to “Ég vil 15% vexti!”


  1. 1 Helga Feb 1st, 2006 at 2:06 pm

    Já það er ekkert grín að finna banka sem gefur 15% vexti, yfirleitt þarf að hafa mjög háar upphæðir til að fá svona háa vexti. 5 millur hérna heima gefa manni til dæmis bara um 9% vexti áhættulaust…

  2. 2 Gisli Feb 1st, 2006 at 3:37 pm

    Sælar og takk fyrir síðast.

    Maður sér nú alveg á myndum hvað þú ert að kenna Kananum. Gústi biður að heilsa. Gísli

  3. 3 Eg sjalf Feb 2nd, 2006 at 3:38 pm

    Helga: jamm, aetli 15% draumurinn se ekki bara draumur? ;) Gisli: Takk fyrir thad! Eg skila kvedju a moti til allra sem vilja thekkja mig :)

Leave a Reply