Hæ dúllurnar mínar!
Vegna fjölda áskorana er mín barasta byrjuð að blogga aftur… Sérstaklega er Angelien spennt að ég byrji aftur að blogga, sem er hálf skondið þar sem að ég man ekki til þess að hún hafi nokkru sinni nennt að lesa bloggið mitt í fyrra!
Ég er sem sagt flutt til Union City og bý með Angelien vinkonu. Union City er skondin borg. Hún er í New Jersey líkt og Hoboken og tekur aðeins örskot stund að skreppa til Manhattan. Hoboken er hins vegar hálfgerður "uppabær", fullur af nýríku fólki, veitingastöðum og börum, á meðan að Union City er fullur af blönkum S-Ameríkubúum. Í búðunum er manni heilsað með "buenos dias" í stað "hi, how are you doing?". Nú hefði aldeilis komið að góðum notum að mæta betur í MH spænskuna hans Sigurðar Hjartars…
Við fengum nýju íbúðina alveg tóma, og þá meina ég ALVEG TÓMA! Það var meira segja búið að taka alla nagla af veggjum og plöturnar úr eldavélinni! Það var því ekki annað í stöðunni en að leigja bílaleigubíl og fara að versla. Seinustu dagar hafa svo farið í að setja saman húsgögn og believe you me, IKEA dót er EKKI auðvelt að setja saman. Það er sænsk LYGI! Ég hef því þurft að fara nokkrar ferðir upp í "hardware"-store og redda skrúfum, hamri og álíka.
Við höfum ekki enn getað sett saman stofuborðið (það vantar annað hvort sterkari hendur eða rafmagnsskrúfjárn!) og við settum sjónvarpsborðið vitlaust saman (af hverju stendur ekki á IKEA kössum að aðeins spýtnahliðin sé pússuð en EKKI hin?!).
Sófann settum við hins vegar rétt saman og ég er mjög stolt af því (enda í fyrsta skipti sem undirrituð prófar "screwdriver" sem ekki er drykkur….)
Ég setti inn nokkrar myndir á myndasíðuna frá seinasta ári í Hoboken. Ég lofa að setja inn myndir frá jólafríinu sem fyrst. Mér þykir sérlega vænt um þessar myndir enda tók ég myndir af ykkur flestum. Því miður gleymdi ég þó að taka myndavélina með þegar ég hitti Egil, Hildi, Þórdísi, Ásdísi og MS-liðið. Þannig að fyrrnefnd mega endilega senda mér mynd
Sakna ykkar allra!
Þóran
p.s. ég er ekki enn komin með net, heimasíma né kapal. En ég læt vita þegar það kemst í gagnið
Hæ hæ! Gott að heyra frá þér!! Takk fyrir góða skemmtun í jólafríinu:). Ég er alveg sammála þér með IKEA vörurnar, maður getur orðið mjög pirraður á þessu!
Takk somuleidis Berglind min, thetta var brilliant jolafri hja okkur!