Hellú!
Mig langar að afsaka það hve lítið ég hef getað skrifað / hringt heim. Málið er ekki að ég sakni ykkar ekki, heldur hef ég bara haft M I K I Ð að gera. Ég fékk nefnilega stöðu við skólann minn. Ég er orðin aðstoðarkennari
Vei! 
Ég sé um tvo áfanga við skólann og því miður hef ég ekki tekið þessa kúrsa áður svo að ég þarf að lesa mikið fyrir hvern tíma. Í raun svo mikið að ég hef ekki enn haft tíma til að lesa fyrir mína eigin kúrsa! Þannig að… planið er að vera heima um helgina og L Æ R A. Ekki gaman!
Aðrar góðar fréttir eru að í dag fékk ég kapal (með fullt af stöðvum!) og heimasíma. Þannig að allir að skrá númerið mitt sem "vin í útlöndum" hjá Símanum og hringja í mig a.m.k. einu sinni í viku! 00 1 201 766 6177
Ég er reyndar voða lítið heima því miður, sérstaklega er erfitt að ná í mig á fimmtudögum en ef að ég svara ekki eru ágætar líkur að sérlegur aðstoðarmaður minn og húsmóðir, Angelien svari!
Þóran
Athugasemdir