When bad things happen to good people er nafn á bók sem að ég ætti hugsanlega að lesa?
Ég er nefnilega endalaust óheppin!
Ég varð lasin um leið og skólinn kláraðist svo að það frestaðist eitthvað hjá mér að pakka draslinu mínu. Þegar pökkunin svo loks hófst sá ég að mig vantaði tösku því að ég á aðeins 2 töskur og önnur þeirra (full af skólabókum) er hjá Adriönu vinkonu. Heba vinkona bauðst til að lána mér tösku, hjálpa mér að flytja og geyma fyrir mig poka af dóti. Planið var að hún fengi lánaðan bíl og næði í mig og dótið. Gott plan!
En nei, nei, vaknar mín svo ekki bara við það að það er búið að loka Manhattan! Verkfall dauðans og það versta í 25 ár! Engar lestar né strætóar ganga og að ná í leigubíl er álíka líklegt og að vinna í lottóinu. Þannig að Heba er föst á Manhattan og mín er föst í Jersey; töskulaus og með flug pantað heim á föstudaginn.
Til að bæta skapið hjá mér þá stíflaðist svo klósettið í rottuholunni og þegar ég reyndi að laga það (með drullusokk og eiturefnasprengju á lofti) þá trylltist klósettið og flæddi um alla íbúð! 3 handklæði og 4 eldhúsrúllur fóru í að þurrka íbúðina.
Þannig að staðan í dag er þessi: Ekkert klósett, engin handklæði, enginn peningur og mín föst í Jersey og í óðaönn að reyna að eignast vini á bíl… til að fá skutl upp á flugvöll ef ekki semst á morgun!
Planið er að ná í einkunnaspjaldið á morgun. Á maður að þora eftir allt þetta?!
Ég kem svo heim á aðfangadag ef guð lofar!
Gleðileg jól :)
Ykkar,
Þóra
hæ, þú mátt nota bílinn sem þú ætlar að gefa mér í jólagjöf.. þangað til 24..
Það er greinilegt að heppnin bara eltir þig á röndum :p ég vona að þetta reddist nú hjá þér og þú verðir ekki föst þarna úti
Þú kannski kaupir nokkra lottómiða fyrir mig þegar þú kemur heim. Heppnin hlýtur að snúast þér í hag, og ég ætla mér að hagnast á því
Hæ hæ loksins! Þú hefur nú aldeilis heppnina með þér núna því að ég er búin að troða gjöf inn um bréfalúguna hjá foreldrum þínum sem mun bíða þín þegar þú kemur heim. Ég var í menningarferð í borginni og það var afar tómlegt án Þórunnar. Sjáumst milli jóla og nýárs
Jæja, verkfallið búið. Vonandi kemstu heim! Sjáumst!