Ú ég er svo happý

Bandaríkjamenn eru engan veginn að taka Ungfrú Alheim keppnina nógu alvarlega, ég er hálf miður mín yfir þessu!

Allir vita að ég er frá Íslandi en enginn hefur óskað mér til hamingju með sigurinn og heldur enginn spurt hvort að ég þekki Unni Birnu! Ég ákvað því í örvæntingu að fara að segja fólki frá því: "Hey, you know what, Miss Iceland just WON Miss World!". Það hefur heldur ekki virkað vel. Flestir horfa á mig eins og að þeir viti ekkert um hvað ég er að tala eða yppta öxlum. Ryan, bandarískur strákur sem er að vinna með mér hópverkefni er þó alltaf til í samræður og þegar ég sagði honum frá þessu hugsaði hann sig um í töluverða stund, kinkaði svo kolli, brosti og sagði; "Yeah, great, I can see where you’re going with that…. So does Iceland have a football team??"

Á þriðjudaginn heldur hópurinn minn fyrirlestur um lokaverkefnið okkar. Verkefnið fjallar um nýja uppgötvun og þann "prócess" sem því fylgir að hanna vöru frá byrjun, safna gögnum sem því fylgja og koma á markað.  Uppgötvunin er tæki sem að mælir vatnsmagn og hraða vatns í ám og er ætlunin að koma tækinu fyrir á bíla sem keyra á slíkum svæðum. Ég veit að fólk bíður spennt eftir því að heyra meira og bendi ég því áhugasömum á að þeir geta nálgast skýrsluna hjá mér í jólafríinu!

Ég setti inn nokkrar myndir á myndasíðuna (20nóv-11des). Til að forðast allan misskilning þá djamma ég mjög lítið. Myndasíðan geftur töluvert villandi mynd af raunveruleikanum því að  myndirnar eru teknar yfir langt tímabil… Eins verður að taka þá breytu inn í dæmið að staðirnir hér loka klukkan 2 þannig að hvert djamm í USA er í raun bara eins og hálft djamm á Íslandi….

Nú fer að styttast í að ég komi heim, ég kem á aðfangadagsmorgun, en af því að ég sakna allra svo mikið vil ég endilega hvetja ykkur til að senda mér línu :)

Þóran

6 Responses to “Ú ég er svo happý”


  1. 1 Berglind Dec 12th, 2005 at 6:16 pm

    Hæ! Vil bara segja að ég hlakka til að fá þig heim. Vonandi ertu ekki búin að djamma of mikið í Ameríkunni! Þú þarft að vera í góðu stuði hér á klakanum í jólafríinu:)

  2. 2 Hilsa G Dec 12th, 2005 at 6:40 pm

    Unnum við? Omg þetta vissi ég ekki. Mikið er ég hamingjusöm. Takk fyrir þessar yndislegu fréttir.

    En aðfangadagsmorgunn!?! Hvurs konar brjálæði er þetta? Kem 4 dögum á undan þér. Vonandi sjáumst við e-ð í fríinu.

  3. 3 Helgan Dec 13th, 2005 at 10:58 pm

    Klukk ;)

  4. 4 Steinunn Þóra Dec 15th, 2005 at 1:26 am

    Ég hefði getað sparað ykkur mikla vinnu. “Tækið” ykkar er nefnilega til. Það heitir VÖÐLUR.
    Okkur fjölskylduna hlakkar annars til að fá þig heim.

  5. 5 Ég sjálf Dec 15th, 2005 at 3:48 pm

    Steinunn: haha, brilliant komment :) Ég minnist á þetta við strákana, þeim finnst þetta líklega ekki eins fyndið, þeir vilja sækja um “einkaleyfi” á hugmyndinni.
    Hildur og Berglind: Ég hlakka roooosa til að sjá ykkur líka :)

  6. 6 Berglind Dec 18th, 2005 at 3:19 am

    Óska þér góðs bata! Vertu dugleg að taka lýsi :)

Leave a Reply