Samviskuspurning! Og treystið mér, ég er ekki góð í samviskuspurningum….
Ef að kennari biður mann um að taka kúrs hjá sér, verður maður ekki eiginlega að segja já?
Verkefnastjórnunar kennarinn minn, Brian, kallaði á hópinn minn eftir tíma og bað okkur að vera eftir. Hann byrjaði á því að segjast vera hálf eyðilagður yfir seinasta skilaverkefni, við værum greinilega í "sögulegri lægð" sem hópur og bað okkur endilega um að "gefa nú allt" í lokaverkefnið. Þrátt fyrir þessa "sögulegu lægð" telur hann okkur þó enn vera besta hópinn í bekknum og bað okkur öll (ég og 4 strákar sem ég er með í hóp) að skrá okkur í framhaldsáfangann. "It’ll be a fun course guys! I’ll promise ya!"
Ég hafði ekki ætlað mér að taka framhaldsáfangann en núna er ég í vafa.
Fyrirlesturinn í dag var annars með hefðbundnu sniði….
Barnið sem að Brian hafði áætlað að myndi fæðast 16.nóvember er ekki enn fætt og er Brian farinn að hafa áhyggjur að það sé honum að kenna; "maybe I over-planned this thing?" sagði hann.
Konan hans er líka að farast úr stressi og vill því hafa bílinn heima við. Vegna þessa þarf grey Brian að taka lestina til Hoboken, sem er víst hreint ekki gaman.
Seinasti kennslutími á að vera miðvikudaginn 7.desember en þar sem að barnið (sem að hefur hlotið nafnið Gabrielle) verður tekin með keisaraskurði þann 5.desember, er víst alls óvíst hvort að sá tími verður kenndur…
Hvers vegna gæti einhver spurt sig? Jú, því hvað vitum við raunverulega um keisaraskurði? Það er ýmislegt sem gæti komið upp á…….
Váá, þetta er næstum því eins og að fylgjast með fæðingu í beinni :þ
hæ, þú verður að læra meira þóra.. engar lægðir..
en hvernig verkefnastjórnun er það að skipuleggja keisaraskurð 5.des.. hvernig væri nú að hafa hann 7.des eftir tíma..
Nákvæmlega, eða 8.des? Til að gefa verkefnastjóranum örlítið meiri tíma til að jafna sig eftir kennsluna?
Hehe:) til að auka á spennuna get ég sagt að ég var tekin með keisara en fæddist samt 3 dögum áður en planað var. Vildi sko stela afmælisdagnum hennar Svanhildar;)
Ásdís: þetta ruglar enn planið! Á ég að hringja í Brian? Reyndar þá er hann hættur að “fíla” mig.. því að ég vil ekki taka kúrsinn hans