Alltaf lærandi

Mér heyrist fólk vera farið að kvarta yfir því að ég sé sífellt djammandi en aldrei lærandi hér í Ameríkunni? Hmmm… Ég skil þessar kvartanir nú varla því ég hef aldrei verið þekkt fyrir að læra meira en nauðsyn krefur. Ég tek gæði framyfir magn sjáiði til…

Hins vegar held ég svei mér þá að ég sé duglegri núna heldur en þegar ég var í BS. náminu. Kannski vegna þess að ég er orðin eldri og þroskaðri? Eða þá að kennslan í MS hefur gert mig að enn meira nördi?

Allavega mæti ég í alla tíma og hef ég meiri áhuga á að læra og skilja efnið en áður. Ég stóð sjálfa mig meira að segja að því í gær að ranghvolfa augunum þegar einn hópmeðlimur minn sagði: "Guys! Come on, let’s face it, ALL we really want from this damn course is an A!"

Í dag fór ég á fyrirlestur sem á að kenna nemendum að koma vel fyrir í atvinnuviðtölum. Skólinn minn býður upp á ótal slíka fyrirlestra enda er þeim mjög í mun að nemendur fái vinnu sem allra fyrst eftir útskrift. Stevens er víst sá skóli í New York og New Jersey  þar sem hæst hlutfall nemenda fær vinnu strax að lokinni útskrift. Til þess að halda þessu sæti er sem sagt boðið upp á ótal fyrirlestra og námskeið. Í dag fékk ég lista yfir 100 algengar spurningar sem búist má við að fá í atvinnuviðtölum, 50 góðar spurningar til að spyrja atvinnurekanda að í atvinnuviðtölum og 100 góð lýsingarorð til að setja í ferilskrána. Lýsingarorðin pössuðu að sjálfsögðu öll við mig enda hljómuðu þau flest eitthvað á þessa leið: "vinnusamur, samviskusamur, skipulagður, hugmyndaríkur" og svo framvegis.

Að lokum fengum við svo afhendan lista yfir "Do & Don’t" í klæðaburði. Gallabuxur, hettupeysur og puma skór voru öll feitletruð á  Don’t’s listanum. Fegin er ég að vera ekki að útskrifast í bráð…..

2 Responses to “Alltaf lærandi”


  1. 1 Jón Atli Nov 30th, 2005 at 8:08 am

    Já fólk er líka alltaf að spyrja mig að þessu, hvort ég þurfi ekkert að læra…. Það veit bara ekkert hvað það er að tala um…. ;)

  2. 2 Berglind Nov 30th, 2005 at 8:48 pm

    Ég mun þá pottþétt tala við þig næst þegar ég fer i atvinnuviðtal! Þú ættir að geta sagt mér góð ráð:)

Leave a Reply