I had a bad day

Ég tel mig vera “einstaklega” umburðarlynda manneskju… En… ég þoli ekki prófessorinn sem kennir mér “kerfisverkfræði”! Versti kennari í heimi og auk þess trúir hún greinilega á aðferðina: brjótum nemendur niður svo að þau leggi harðar að sér!

Svona hófst tíminn í gær: (lesist með Inverskum-Enskum hreim)

“Þið eruð versti hópur sem að ég hef nokkrum sinnum kennt!”

Þögn

“Eða a.m.k. verstu mastersnemar sem að ég hef kynnst! Hvers vegna getið þið verið svona kærulaus?”

Meiri þögn

“Ég hef vanalega fengið merkilega prófdómara hingað til að dæma lokaverkefnin ykkar en ég veit ekki hvort að ég treysti mér í það núna! Verkefnin ykkar eru hræðileg”

Þögn

“Jæja, alveg er mér sama, ef að þið viljið lélega einkunn þá er það ykkar mál!”

Löng þögn

“Jæja, eitthverjar spurningar um fyrirlesturinn í seinstu viku?”

Þögn

“Anyone?”

Óþægilega löng þögn og prófessorinn ákveður því að skipta um gír og fer að hlæja!

“You all look tired today, what’s wrong with you?”

Þögn

“Anyone?”

Löng þögn

“You in the back, you even have coffees and still look tired and silent! What’s wrong with you Franklin and Thora?!”

Ég: “Uuuuuu… it’s cold outside”

Strákur á fremsta borði: “I would have gone for: I had a bad day…!”

5 Responses to “I had a bad day”


  1. 1 Helga Guðrún Nov 23rd, 2005 at 12:50 pm

    Veit nú ekki hvað kaffi myndi virka á mann í tíma hjá þessari, hljómar ekkert æðislega fun neitt.

    knús og kyss

  2. 2 Helga Nov 23rd, 2005 at 4:21 pm

    Is it cold? Are you not from Iceland Thora…?

  3. 3 Ég sjálf Nov 23rd, 2005 at 5:40 pm

    “Ekkert æðislega fun” myndi ég nú kalla understatement. Krakkarnir kalla hana “Ms. biatch”… Ekki ég samt, því ég skil ekki svona slangur :) Og já mér er mega kalt :( mér er illa við kulda, because Iceland is green and Greenland is icy, right? hoho!

  4. 4 egill Nov 24th, 2005 at 1:26 am

    Alltaf sama sagan með þig Þóra, með læti í tímum og kjaft við kennarana! :)

  5. 5 Helga Nov 24th, 2005 at 10:58 am

    Jamm það er satt Þóra, það er allavegana enginn snjór hér :þ

Leave a Reply