Á mánudaginn hitti ég Hebu á Manhattan og fékk þar m.a. íslenskt nammi og malt&appelsín. Malt&Appelsín minnir mig alltaf á jólin. Ég drekk það reyndar sjaldan sjálf en mamma og pabbi fylla alltaf bílskúrinn af jólaöli í desember. Þannig að það má segja að ég hafi komist í pínku ponsu jólastuð í þessari viku….
Margar rottur búa á lestarteinunum í New York og ákváðum við Heba að taka mynd af einni slíkri. Það endaði hins vegar ekki vel. Öryggisvörður kom hlaupandi og skipaði okkur að eyða myndinni! Það er nefnilega andstætt hryðjuverkalögunum að taka myndir inn á lestarstöðum í New York… lögin snúa greinilega líka að myndatökum af rottum…
Verkefnastjórnunar- kennarinn minn, hann Brian, klikkaði á að tímasetja barneignir konu sinnar og var því tími haldinn þann 16.nóvember. Stærsti hluti tímans fór þó í sögur af hinum væntanlega erfingja.
Brian elskar konuna sína greinilega mjög mikið og vill allt fyrir hana gera. Þau búa í 2 hæða húsi og er eldhúsið á neðri hæðinni en svefnherbergið á efri hæðinni. Hann sagði okkur stoltur frá því að hann hefði nýlokið við að smíða “skiptiborð” með ásettum litlum ísskáp og örbylgjuofni. Tilgangurinn? Jú, þá þarf konan ekki að fara á milli hæða til þess að hita upp brjóstamjólkina fyrir barnið.
Við erum aðeins tvær stelpur í bekknum og um leið og hann lét þetta út úr sér sá ég að stelpan hvítnaði upp, leit svo fyrst spyrjandi á mig og svo á Brian og sagði:
“But Sir, seriously, you should never heat breastmilk in a microwave, that’s dangerous….”
Takk fyrir að minna okkur á jólaölið. Nú í vaxandi skammdegi veitir ekkert af að fara að sanka að sér smá jólaöli í bílskúrinn. Kannski verður eitthvað eftir þegar þú kemur heim ef við kaupum nógu mikið!