Hoboken-lögreglan er svei mér þá jafn æst og Húsavíkur-lögreglan í að stoppa menn og sekta. Ég man varla eftir því að hafa gengið götuna mína, Washington Street (sem er aðalgata í bænum, einskonar “Laugavegur”) án þess að sjá lögreglubíl.
Vinur minn, Frank, hlýtur samt að teljast með þeim óheppnari…. Á fimmtudaginn var hann stoppaður tvisvar og sektaður í bæði skiptin fyrir að vera ekki með Bandarískt ökuskírteini. Af hverju var hann ekki með ökuskírteini? Jú, hann féll á bóklega prófinu, en það er víst mjög algent að fólk sé fellt á bóklega prófinu hér í Jersey. Frank drekkur nefnilega ekki og féll á spurningunni:
A twelve-ounce can of beer has as much alcohol in it as:
a) 1 ½ ounces of 86 proof whiskey b) Bottle of rum c) Martinis d) Pint of brandy
Rétt svar fylgir ekki sögunni…
Þessi spurning myndi nú ekki vefjast fyrir íslenskum verkfræðinema!
þóra þú getur tekið gleði þína á ný… kominn linkur