Íslenskt sjónvarp

Ég horfði á íslenska bahelorinn áðan. Gaman að horfa á íslenskt sjónvarp þegar maður er í útlöndum. Ég horfi stundum á fréttir/kastljós þegar ég hef tíma. Ég fékk alveg netta heimþrá við að horfa á þennan íslensk-ameríska þátt, ég meina come on, diskókeila í Öskjuhlíðunni og matur á Nauthóli, hvað er íslenskara en það?!
Ég sé enga ástæðu til að setja út á fólkið sem er að taka þátt í þessu en ég er samt enn að reyna að átta mig á hvort að þeir á skjá1 séu viljandi að búa til hallærislegan þátt eða hvort að þátturinn sé bara hallærislegur “alveg óvart”.
Ég meina að keppa um deit með piparsveininum með því að taka þrekpróf í Laugum? Mér finnst það nú FULL langt gengið…
Og já mér finnst að setningar á borð við:
Bachelorinn: “val mitt þarf ekki að þýða að þær sem fá ekki rós séu vondar manneskjur”
og
Kynnirinn: “þau féllu nú aldeilis fyrir hvort öðru!”(á deitinu á skautasvellinu)
ætti að BANNA!

3 Responses to “Íslenskt sjónvarp”


  1. 1 Helga Oct 21st, 2005 at 3:18 am

    haha, ég er svo sammála, þetta er eiginlega pínlegt!

  2. 2 Berglind Oct 21st, 2005 at 10:52 am

    Ég sá þáttinn líka! Mér finnst hann Steini bachelor ekkert svaka aðlaðandi og þá meina ég svona fun, þannig ég held að ég hefði ekkert pínt mig svakalega mikið í Laugum til að komast á deit með honum. Það hefði þá verið meira fyrir fólkið heima í stofu :)

  3. 3 Ég sjálf Oct 21st, 2005 at 2:25 pm

    hehe, já, maður hefði kannski tekið “eina eða tvær armbeyjur” fyrir fólkið heima í stofu ;)

Leave a Reply