Síðan í gær er búið að vera rosa kalt í íbúðinni minni. Ástæðurnar eru tvær, annars vegar þá er glugginn í herberginu mínu það illa einangraður að það þarf ekki mikinn vind til að það blási inn og hins vegar er ekki búið að kveikja á kyndingunni. Ég svaf því í 66°N peysunni minni og ullarsokkum í nótt! Samkvæmt dagatalinu verður ekki kveikt á kyndingunni fyrr en í nóvember. Ég er frá Íslandi og því svo vitlaus að halda að kveikt sé á ofnum eftir hitastigi en ekki dagatali……
Á morgun á ég að halda stuttan fyrirlestur um kerfisverkfræðilegar ástæður þess að Vasa-skipið sökk á sínum tíma. Satt að segja veit ég ekki alveg hvað ég á að segja, en mig minnir hins vegar að ég hafi séð Vasa safnið með Sibbu á norðurlanda-djammi-okkar hér um árið. Ef ég verð uppiskroppa með kerfisverkfræðilegar ástæður get ég þá kannski minnst á ferð mína til Stokkhólms… Ég er án efa sú eina í hópnum sem hefur farið til Svíþjóðar..
Ég þýði System Engineering alltaf Kerfisverkfræði. Ef að ég er að þýða vitlaust (og þar að leiðandi að læra eitthvað allt annað en Kerfisverkfræði) þá látið mig vita….
Og tja, svona rétt í lokin. Ef einhverjum leiðist MJÖG mikið getur sá sami allt eins farið á google, skrifað failure og ýtt á Im feeling lucky .
hverjar eru svo “kerfisverkfræðilegar” ástæður fyrir því að Vasa skipið sökk? Maður bara spyr eins og auli hmm…
Kerfisverkf. snýst að hluta til um að skrá niður hvern einasta hlut/verknað sem gerður er fyrir fram og hver er ábyrgur. Eftir á er því hægt að læra af mistökunum (og skamma þann sem klúðraði málum…!). Á 17.öld var sænski kóngurinn hins vegar einráður og breytti öllu að vildi, í tíma og ótíma. Hann vildi bara vinna stríðið við Pólland (eða “beat the war with the Danish people” eins og einn gaurinn orðaði það í sínum fyrirlestri!)
Var ekki vandinn sá að hann vildi hafa sem flestar og flottastar fallbyssur á skipinu og var sífellt að láta bæta við fleiri fallbyssum þrátt fyrir að “verkfræðingar” hans á þeim tíma reyndu að sannfæra hann um að það væri ekki gott fyrir stöðugleika skipsins? Hann lagði semsagt meira upp úr lúkkinu en örygginu?
Jú, hann var sífellt að lengja og þyngja skipið, og vegna þessa þá breyttist þyngdarpunkturinn í skipinu, svo það sökk eftir 1500m. siglingu!
mér finnst þú orðinn einum of mikill verkfræðingur þóra…