Ms. Dalsdottir

Ef að það hefur farið fram hjá einhverjum þá er ég mjög óheppin manneskja. Förum aðeins yfir gærdaginn…

#1: LÍN er leiðindastofnun (eins og flestir vita sem hafa tekið námslán í útlöndum) og eru þeir sífellt að biðja mig um að fylla út hina og þessa pappírana sem staðfesta að ég sé örugglega í Stevens en ekki bara að lifa kóngalífi á námslánunum á Kanarí! Í fyrradag fór ég sérferð upp í skóla til að láta “lánafulltrúa” skólans fylla út eitt slíkt plagg. Þar átti hann að skrifa hve margar annir námið væri, hvenær ég myndi útskrifast, nafnið mitt og kvitta undir. “Lánafulltrúinn” treysti sér ekki í þetta mikla verk á staðnum svo hann sagði: “Give me 24hours”
24 tímum seinna labba ég því aftur upp í skóla (og í þetta skipti vill svo heppilega til að stormur og rigning gengur yfir bæinn!) og kem ég hundvot upp í skóla rétt fyrir lokun. Maðurinn réttir mér blaðið og lokar svo skrifstofunni. Þegar ég fer að skoða blaðið sé ég hins vegar að manninum hafði tekist að klúðra öllu nema nafninu mínu! Hann segir námið 3 annir í stað 4 og að telur að ég útskrifist vor06 en ekki vor07 og kvittar svo ekki undir! (sem var pointið með að ég bað HANN um að fylla þetta út, án undirskriftar hefði ég gert þetta bara sjálf!).
Nú þarf ég sem sagt að panta annan tíma aftur hjá “Lánafulltrúanum”…

#2: Ég fékk hringingu frá Social Security-service um að ég fyndist ekki í kerfinu og því væri ekki víst að Social Nr. mitt virkaði sem skyldi. Ég var náttúrulega ekki sátt við það því að ég hef mikið lagt á mig til að fá þetta númer (um er að ræða eins konar kennitölu en hins vegar mikið vesen að verða sér út um hana) og spurði ég því hvað væri að. Kemur í ljós að einhver snillingurinn hjá Útlendingastofnun hefur skráð nafnið mitt vitlaust á vegabréfsáritunina og af því að það er FYRSTI stafurinn í eftirnafninu sem er rangur, þá er bara ekki hægt að laga þetta!

Ég heiti sem sagt Ms. Dalsdottir héðan í frá! Hér kemur smá bútur af samtali mínu við konuna sem hringdi.
(ég) -“It’s a P, not a D”
(kona) -“I can’t change your intitals miss, I’m sorry”
-“Why? What? Why not?”
- “It’s not just ANY letter. It’s the FIRST letter in your LAST name. You must see that we don’t just run around changing people’s initials!”
(ég orðin pínku reið) -“But it’s YOUR mistake!”
(kona hugsar sig um) -“Well, if you want you could try to talk to Immigration Office. But I’m sure you will have to make an appointment with them in NYC”
(fúl og pirruð) –“Does this really matter? Should I try to change this?”
(kona hugsar sig um) –“Nah, it doesn’t really matter…. Unless…. hmmm….let’s say you want to leave US and come back?!”

*Andvarp*

3 Responses to “Ms. Dalsdottir”


  1. 1 Mamma Oct 13th, 2005 at 3:59 pm

    Mér finnst að þú þurfir kannski ekki að vera svo leið yfir “stafaruglinu”. Hugsaðu þér hins vegar pabba þinn sem heitir nú Dall (eða kannski Dalur) sem virðist reyndar náskylt “dollari” og gæti bent til þess að skrifræðið teldi hann ekki hafa annað hlutverk en senda þér peninga!
    Þetta verður kannski til þess að þú kemst ekki heim í sumar því þeir hjá útlendingaeftirlitinu þekkja enga sem heitir “Pálsdóttir” og munu telja að þú sért að lauma þér inn í landið á fölsku nafni!

  2. 2 Ég sjálf Oct 13th, 2005 at 4:51 pm

    hehe, já, ég hafði ekki hugsað um það.. “my father, The Dall” :)

  3. 3 Berglind Oct 14th, 2005 at 7:05 pm

    Það var nú nóg mikið vesen hjá þér að komast til U.S.A þannig ég skil að þú sért orðin pirruð á þessu öllu!!

Leave a Reply