Nýjar myndir

Ég var að enda við að setja inn myndir á myndasíðuna. Flestar eru þær frá Frelsisstyttu-ferðinni og partýi sem ég fór í með Adriönu fyrr í mánuðinum.
Myndirnar eru nú misgóðar en vonandi finnst einhverjum gaman að skoða þær. Ég minni á að það er hægt að skrifa komment (mamma var sú eina sem fattaði það seinast!)

Sakna ykkar allra!
Þóra

p.s. ef einhver á myndir til að senda mér þá er ég með g-mail með nóg af plássi! Sama addressa og hotmailið nema endingin er önnur, þ.e. thorapals@gmail.com(ath, ég nota enn thorapals@hotmail.com en sú addressa tekur ekki við stórum viðhengjum). Ég á svo fáar myndir af vinum mínum heima á Íslandi þannig að endilega sendið mér myndir! Plís!

0 Responses to “Nýjar myndir”


  1. No Comments

Leave a Reply