Steinunn klukkaði mig sem þýðir að ég þarf að segja 5 gagnslausar staðreyndir um sjálfan mig…
#1 Þegar ég var lítil fékk ég einu sinni kartöflu í skóinn. Ég skammaðist mín hins vegar svo fyrir það að ég sagði öllum að ég hefði fengið mandarínu….
#2 Í rauninni hefði ég aldrei átt að mega fermast þar sem að skylda var að mæta í amk 12 sunnudagsmessur og fá stimpil eftir hverja messu. Vinur minn stal hins vegar stimplinum og ég mætti því bara í eina messu…
#3 Ég útskrifaðist af eðlisfræðibraut í MH. Mig vantaði hins vegar bara einn áfanga upp á það að klára náttúrufræðibraut líka. Áfanginn sem ég nennti ekki að taka var Jar203 (og fjallaði basically bara um grjót að ég held). Áfangastjórinn í MH sagði við mig að þetta væri heimskulegasta ákvörðun sem hann hefði heyrt um…
#4 Ég skil ekki í dag hvernig við gátum það en við Sóley vorum nánast saman 24/7 í 9mánuði þegar við bjuggum í Danmörku. Þar af deildum við meira að segja saman rúmi í 3 mánuði að mig minnir…!
#5 Ég fæ oft bakþanka yfir náminu sem ég valdi mér hér í USA. Ég skil oft ekkert hvað ég er að læra og finnst ég ekki kunna neitt…
Í öðrum fréttum er þetta helst:
Ég fór í bíó um helgina með Hebu á Just like Heaven. Af mörgum væmnum myndum sem ég hef séð um ævina var þessi örugglega sú væmnasta. Ég komst líka að því að poppið og kókið í bíóum í NYC er enn dýrara en í Reykjavík. Ég hélt ekki að það væri hugsanlegt…
Ég talaði við Ólínu í gegnum vef-myndavél í fyrradag. Barnið er orðið risastórt! Ég er enn að bíða eftir myndum en lofa að setja þær á myndasíðuna um leið og þær berast…
Margt spennandi á dagskránni hér í Ameríkunni. Á morgun (föstudag) er skipulögð hópferð með leigubíl í stórmarkað hér nálægt. Ég er í óða önn að skrifa innkaupalista….
Á sunnudaginn er ég svo að fara með skólanum að skoða Statue of Liberty. Allir eiga að taka með sér nesti þannig að þetta er svona skoðunar-/picnic- ferð. Ég er mjög spennt!
Sakna allra heima, veriði nú dugleg að skrifa mér e-mail!
Þóra
bara heppin að fá að vera með mér svona mikið…það er nú ekki hver sem er sem fær að deila með mér rúmi í 3 mánuði..
Sóley: bara heppin að ég KLUKKA þig núna
Vonandi gerir þú góð kaup í stórmarkaðinum! Þú kennir okkur gömlu hjónunum þetta svo þegar þú kemur heim.
Hvernig datt þér í hug að sleppa að útskrifast af tveimur brautum út af einum jarðfræðiáfanga? Það er svo gaman að útskrifast tvöfalt, maður fær að fara tvisvar upp á pallinn
En það geta náttúrulega ekki allir verið athyglissjúkir hehe 
já ég man, þér fannst Páll Imsland ekki nógu skemmtilegur… Það var mjög típískt að í þessar þrjár mínútur sem ég þurfti að bíða eftir tölvunni þegar ég var að reyna að tala við þig á MSN, þá fraus tölvan… mér er ekki ætlað að fá að “vera með” á internetinu
Reyndi að senda þér myndir áðan en fékk þær endursendar. Sendu mér meil um hvaða netfang er best að nota!