Ég þoli ekki þegar ég asnast til að kaupa eitthvað drasl. Í seinustu viku keypti ég mér til að mynda brúnan bol. Bæði fannst mér hann flottur og svo féll ég kylliflöt fyrir söluræðu konunnar í búðinni; Miss, you gotta have this one! You know that brown is the new black! Eftir einn þvott er bolurinn hins vegar ónýtur, bæði orðinn hálf grár á litinn og allur í litlum götum! Drasl!
Annað dæmi? Ég keypti mér naglalakk hér úti, Great nails in 5-7 days heitir það. Ég er að segja ykkur það að núna eru liðnir 11 dagar og neglurnar á mér eru bara langt í frá að vera great
Drasl!
Ég heyrði nýtt heiti yfir okkur sem búum rétt fyrir utan Manhattan. Við köllumst víst Bridge&Tunnel-people (því að við þurfum annað hvort að keyra yfir brú eða fara í gegnum göng til að fara niðrí bæ). Þetta á víst að vera hálf-niðrandi heiti en mér finnst það skondið.
Þegar ég bjó á Íslandi var um það bil það menningarlegasta sem ég gerði að kveikja á Ríkissjónvarpinu og horfa á Desperate Housewives… Af einhverjum ástæðum er ég alltaf miklu menningarlegri í útlöndum. T.d. í sumar þegar ég heimsótti Sóley í Barcelona fór ég á alls kyns söfn og ég hér í Ameríkunni er ég líka frekar dugleg. Í gær fór ég með einum af þýsku strákunum í bíó upp í skóla. Nemendafélagið sýnir hálfs mánaðarlega menningarlegar bíómyndir og er frítt inn. Myndin í gær hét Being Julia og var bara mjög skemmtileg. Samt leið mér pínku eins og ég væri í enskutíma í MH, þetta var þannig mynd. Þýski vinur minn klikkaði samt ekki og kom með samlokur og vatn í brúsa handa okkur! Ég get ekki lýst hve artí-fartí mér leið að sitja á laugardagskvöldi í fyrirlestrarsal, horfa á menningarlega bíómynd og borða samloku með lifrakæfu….
hahaha… sé þig alveg í anda með naglalakkið.. í mussu.. ógreidda og með samloku með lifrakæfu á laugardagskvöldi…
Varð það ekki alltaf þinn draumur að vera í norður kjallaranum í MH..
þóra mér finnst síðan þín fyndin.. fólk er byrjað að glápa á mig hérna.. En hvernig væri nú um jólin að mæta með hákarl og geyma hann svo opinn í ísskápunum… þú svo kaupir þér einn lítinn til að hafa inní herbergi
Ég hef enga trú á að þú hafir náð MH-standard í útliti. Það er ekki nóg að horfa á eina “listræna” mynd til að ná því. (ég bendi á myndir af þér hér á blogginu því til stuðnings að þú átt langt í land hvað útlit og klæðaburð varðar) En þú hefur örugglega náð að líta mjög gáfulega út!
Sóley: Ég spái í þessu með hákarlinn, annars er það nú eiginlega orðið mottó hjá mér að borða bara “íslenskan” mat með þér
Mamma: Ég held að þú ofmetir dóttur þína, ég er ekki alveg nógu smart hér í Ameríkunni… sem er reyndar allt í lagi því að það er hálfgert “lúða-þema” í skólanum mínum…
Klukk. Þú ert’ann. http://kaninka.net/steinunnthora/013464.html