Bandarísk væmni

Það kemur mér sífellt á óvart hve væmnir Bandaríkjamenn eru. Ég er í kerfis-verkfræðikúrsi (innskot: þurr og leiðinlegur kúrs en nóg um það) og þar er að mestu leyti unnið í hópum. Ég er í 5 manna hópi og er að sjálfsögðu eina stelpan. Í dag áttum við að halda stuttan fyrirlestur svo við hittumst í gær og bjuggum til glærur. Einn í hópnum tók sig svo til og breytti glærunum á síðustu stundu og því miður komst ég ekki á netið til að sjá þær fyrir tímann til að “leggja blessun mína yfir lokaúgáfuna”. Ég afsakaði mig því við hópmeðlimana í tímanum núna áðan og sagðist þykja þetta leiðinlegt.
Svarið sem ég fékk var: “Thora, don’t worry about one mistake! The most important thing in our relationship as a group is that we all think like a whole and we all aim at the same goal. To achive that goal we need to feel good about each other and comfortable to communicate freely.” Ég segi nú bara “já og amen”…..

Í öðrum fréttum er það helst að í hádeginu í dag voru 93F (um 34C) hér í Hoboken. Ég er orðin svoldið þreytt á þessum hita og ég svitna eins og mér sé borgað fyrir það þegar ég labba meira en 3 skref frá loftkælda herberginu mínu…..
Eina sem ég get þó huggað mig við er að heima á Íslandi eru líklega ekki nema 5-8C!

4 Responses to “Bandarísk væmni”


  1. 1 Mamma Sep 14th, 2005 at 10:35 am

    Ég átti nú ekki von á að þú færir að kvarta yfir of miklum hita!
    Þú getur kannski huggað þig við að hér í Reykjavík voru 7 gráður í morgun - og kollurinn á Esju var hvítur.
    Ég held að þér fyndist kannski fullkalt hér!

  2. 2 Erna Sep 14th, 2005 at 2:07 pm

    Púff, þú hefðir þá átt að vera hér í hitanum í sumar! Hehe…
    En annars, velkomin á svæðið;)

  3. 3 Daði Sep 20th, 2005 at 6:29 pm

    U2 eru 7 október í New York, 96% líkur að Daði mæti á þá tónleika og þá fimmtudaginn 6 október lending.

    Búinn að finna miða fyrir um 200 dollara, hreinlega verið að gefa þettt.

  4. 4 Ég sjálf Sep 20th, 2005 at 11:45 pm

    Daði: Mig langar einmitt rosalega á tónleikana, en 200 dollarar HELDUR mikið ;)

Leave a Reply