11.september er í dag og því nokkuð skrítin stemming í NYC, alls staðar flaggað í hálfa stöng og Manhattan hljóðlátari en vanalega. Það var lítil minningarathöfn í bænum mínum áðan og ég leit þar við.
Ég rakst á Latabæ í sjónvarpinu í gær og fannst ég verða að horfa í nokkrar mínútur. Hræðilegur þáttur; skoppandi, öskrandi fígúrur og ærandi krakkatónlist. Framburðurinn hans Magga Schevings var samt skondinn, ég gat skemmt mér yfir honum!
Annars fékk ég skrítna gjöf í morgun. Önnur konan sem leigir með mér vakti mig, alveg eitt-bros í framan, og sagðist vera með gjöf handa mér. Ég varð strax mjög spennt því að ég hef ekki fengið gjöf síðan á afmælinu mínu. Hún bað mig um að koma niður og hjálpa sér að bera gjöfina upp.
Þegar ég kem niður sé ég að gjöfin mín er MÝKINGAREFNI! Sex 3lítra flöskur af mýkingarefni! Kemur í ljós að konan er komin með nýjan kærasta sem hefur þá frábæru vinnu að keyra út mýkingarefni. Ég á víst bara að láta vita þegar mig vantar meira mýkingarefni og þá fæ ég fleiri flöskur sendar! Þar sem að ég nota aldrei mýkingarefni er ég nokkuð viss um að 18 lítrar dugi mér allavega fram að jólum….
Og á meðan ég man… þá skellti ég inn nokkrum myndum sem ég tók um helgina. Í fyrsta lagi nokkrum hér frá Hoboken, í öðru lagi frá því þegar við Evrópubúarnir fórum á Fridays og í þriðja lagi af mér og Hebu, brilliant íslenskri stelpu sem býr á Manhattan.
Þú verður greinlega að fara að nota mýkingarefni til að nýta þér þessa frábæru gjöf! Annars má nota það á bleyjurnar hjá Ólínu frænku þinni ef þú kemur með það heim um jólin.
Verð að játa, tja, fávisku mína eða einfeldni. Ég hafði aldrei látið mér detta það í hug að það að keyra út mýkingarefni væri 100% starf!
Notaru aldrei mýkingarefni! Það finnst mér skrítið. Um að gera að byrja núna! Algjör bylting,hehe.Flottar myndir líka, halda þessu áfram!
“Tæknileg stjórnun flókinna kerfa” og mýkingarefni er dásamleg blanda, nú er bara finna hagkvæmar aðferðir við að koma þessu í karlinn.Ef á flöskunum stendur “GOOD - CRAB”, þá er ein sprauta í æð tilvalin. Ef efnið er bleikt, þá er eins gott að karlinn eigi ekki antifeminism heima hjá sér.
hahahaha
brilliant komment