Það leiðinlegasta sem ég geri er að fara í þvottahúsið! Auk þess sem að það er rándýrt að þvo þarf maður að labba heillangt með þvottinn og bíða svo eftir að vélin þvoi, setja svo þvottinn í þurrkara og bíða ennþá lengur! Svo kemur draslið allt krumpað út svo að minnst klukkutíma í viðbót þarf að eyða í að strauja allt heila klabbið! *andvarp*
Útí Köben fórum við Sóley oftast saman að þvo, sem er mun skárra en að fara ein (í minningunni fórum við alltaf í Form&Fitness á meðan að við biðum eftir vélinni.. en í raunveruleikanum held ég að við höfum bara farið þangað einu sinni eða tvisvar…)
Í kvöld er hið fyrsta af annars mánaðarlegum Pizza&Beer-kvöldum upp í skóla. Þá er víst ókeypis bjór og pizzur fyrir masters-nema og kennara og mikill spenningur er búin að vera í loftinu! Ég var reyndar ekki að ná þessum rosa spenningu fyrst en þar sem að samnemendur mínir hafa ekki talað um annað í 2vikur þá er ég ekki frá því að ég sé orðin pínku spennt….!
Annars er það helst að frétta (eins og lesa má í kommentakerfinu) að bróðurdóttir mín og fallegasta barn í heimi, Ólína Stefánsdóttir, er farin að velta sér! Hún er sú manneskja sem ég sakna mest á Íslandi og get ekki beðið eftir að knúsa hana um jólin!
Tækinmaðurinn minn er svo rétt í þessu að vinna í myndasíðunni minni svo að ég stefni á að henda inn einni eða tveimur myndum í kvöld eða á morgun…
Fallegasta barn í heimi er líka farið að borða graut. Og það finnst henni sko spennandi.
Gætirðu sent mér netfang sem ég get sent þér myndir af fallega barninu á? Þú hlýtur að hafa eitthvað stærrar og betra en bara hotmeilinn.
mér var einmitt hugsað til þín á þessari stundu.. þar sem ég er að elda lambalæri og hlusta íslenska tónlist.. eins og þú ert alltaf að gera…
En by the way.. vorum við ekki alltaf í form og fittness… jú.. en mundu bara að það má nota föt í meira en 1 klst… það hlýtur að spara þér þvottin.. þú ert í verkfræðiskóla.. allt í lagi að vera með smá stibbu..verður bara gáfaðari við það..
Ég hlusta bara á íslenska tónlist og borða lambalæri, harðfisk og kjötsúpu á Spáni með þér.. þú veist það Sóley mín