Í morgun fékk ég eftirfarandi orðsendingu í gegnum lúguna. Attention!! YOU! The one who keeps throwing garbage on the hallway; Take it up! Throw it in the garbage can and never do it again!!
Ég varð fyrst pínku hrædd því að mér fannst verið að skamma mig en ég tek það nú samt fram að mér hefði seint dottið í hug að henda ruslapokunum mínum fram á gang. Klukkan 10 í kvöld verður haldinn húsfundur þar sem ætlunin er að finna þann seka. Bandaríkjamenn fylgja reglum almennt mjög stíft þannig að subbu-gaurinn hlýtur að vera erlendur nemandi. Ég bíð spennt eftir húsfundinum… þar sem planið verður væntanlega að gramsa í ruslapokunum í leit að sönnunum!
Ég á ekki sjónvarp. Ég ætti líklega að kaupa mér sjónvarp þar sem að ég á ekki marga vini en þá þarf ég ekki bara að kaupa mér tæki heldur líka að borga fyrir cable og panta cable guy heim til að setja þetta allt upp. Hins vegar á ég tölvu og get því leigt mér dvd hjá blockbuster. Vidjó-gaurnum finnst frábært að ég heiti Thora og er viss um að ég hljóti að vera skyld uppáhaldsleikkonunni hans Thoru Birch. Hann er alveg búinn að sannfæra mig og kynni ég mig nú alltaf sem; Hi, my name is Thora, Thora like the actress
Jæja.. mín farin að gera eitthvað að viti!
http://s1.is/s1/vefsjonvarp_skjaseins/
… Silvía Nótt og brúðkaupsþátturinn JÁ.
Þú verður vinsælasta stúlkan á svæðinu!
Er ekki rétt að horfa fyrst á THE cable guy, áður en lagst er í lagnirnar.
Been there, done that, Cable Guy er snilldarmynd
Hver er annars MS-ingurinn? Jonki?