Jæja, þá er mín barasta búin að koma sér fyrir í Hoboken. Hefðbundin kennsla byrjaði í þessari viku en hingað til hefur mikill tími farið í skráningar í kúrsa, viku námskeið fyrir erlenda nemendur, viðtöl við prófessora og fleira stúss. Svo þurfti ég auðvitað ein að flytja allt dótið mitt upp á 3ju hæð sem ég tel nú nokkuð afrek!
Hoboken er lítill sætur bær. Hann liggur við Hudson ána og er því með útsýni yfir Manhattan. Bæði lest og strætó ganga á milli Hoboken og Manhattan og tekur það mig því ekki nema korter að komast á milli, mjög hentugt! Bærinn er víst þekktur fyrir að vera mikill djammbær en ég hef ekki mikla reynslu af því ennþá…
Skólinn reddaði mér húsnæði, þetta er ekki Campus beinlínis heldur íbúðahús sem skólinn leigir og framleigir til nemenda í mastersnámi. Ég bý með tveimur fullorðnum konum í íbúð, annarri rússneskri sem heitir Olga og hinni frá Suður Kóreu. Kóreu konan á sér langt nafn sem ég mun eflaust aldrei geta borið fram svo ég kalla hana bara Lee…
Olga og Lee búa saman í herbergi. Þær virðast báðar hafa tekið upp þema. Lee safnar efnafræðibókum og verðlaunaskjölum fyrir góðan námsárangur. Hún fékk t.d. verðlaunin Best Potential Writing árið 1998 frá Boston University. Ekki amalegt það! Olga safnar aftur á móti ljóðabókum, böngsum, hjartalaga kortum og myndum af manninum sínum.
Ég virðist eingöngu safna drasli og vantar því betra þema. Hugmyndir eru vel þegnar!
Í skólanum mínum eru fullt af alþjóðlegum nemendum en flestir koma frá Indlandi og Kína og nokkrir frá Rússlandi. Við erum aðeins 9 frá Evrópu og höfum því haldið smá hópinn. Auk mín eru það 2 strákar og 1 stelpa frá Þýskalandi og 5 strákar frá Frakklandi. Í gær ákváðum við að hittast og fara á blús bar sem er alltaf með uppákomur á mánudögum. Þýsku strákarnir tveir mættu þó ekki því þeir voru heima að læra og þýska stelpan mætti ekki því að hún las í blaði að hverfið hennar væri hættulegt stelpum eftir klukkan 8 á kvöldin! Ég og frönsku strákarnir skemmtum okkur hins vegar vel. Á mánudögum treður upp frægur blús gaur (kallar sig Big Ed Sullivan) og er öllum sem kunna að spila leyfilegt að troða upp með honum. Þeir sem eru góðir fá að spila nokkur lög en hinum er hent út af staðnum. Áhorfendur sitja svo eða standa alveg þétt við sviðið, drekka Bud eða Guinness og dilla sér með tónlistinni. Mjög athyglisvert!
Jæja.. þá fer að styttast í tíma hjá minni.
Later!
Til hamingju með heimasíðuna!
Gott að mamma amk lesi síðuna!
Jei! þetta var skemmtilegur pistill, hlakka til að fylgjast með lífi þínu í Hoboken. Knús og kyss frá UK
Ljúft að sjá að heimasíðan er orðin virk. Það verða a.m.k tveir fastir lesendur. Ég er búinn að gera það sem mér var falið. Kærar kveðjur.
Hæhæ. Ég er með hugmynd að þema, þú átt auðvitað að safna peningum, skil ekki hvernig þér yfirsást það.
Fann annars heimasíðuna hans Big Ed Sullivan - http://www.bigedsullivan.com/
Haltu áfram að skrifa, og láttu mig svo vita þegar þú ert tilbúin að setja inn einhverjar myndir!
Ég hata frakka!
Ég mæli með ruslaþema þannig að verðlaunaþemað og bangsaþemað flytji út. Myndi mæla með áfengisþema en ég tók það í DK og fullkomnaði.
Egill: Ég er rosa löt að taka myndir, en þetta er allt í vinnslu. Ég læt þig vita.
Daði: Er áfengisþemanum sem sagt lokið? Right