Hæ, hæ
Núna er mín loksins útskrifuð og stolt yfir að hafa lifað útskriftarathöfnina af í 30 stiga hita og sól. Veðrið var búið að vera fínt dagana á undan en útskriftardagurinn (sem svo skemmtilega vildi til að er afmælisdagur Ömmu Þóru!) var heitasti dagurinn í ár. Ég sat því og svitnaði í svörtu útskriftarskikkjunni með úskriftarhattinn. Það var samt eftirminnileg upplifun að mæta og ég lofa að setja inn mynd næstu helgi þegar ég kem aftur til Jersey.
Núna er ég stödd í útskriftarferð með mömmu og pabba í San Francisco. Mikil rólegheit, rölt og góður matur. Fyrsta daginn fékk ég þó kuldasjokk enda bara íslenskt sumar hér, 10 gráður og rok (!) Ég splæsti því í kuldajakka og hef haft það gott síðan
Dagskráin so far…
Laugardagur: 6 tíma flug frá Jersey + ótal tímar í ferðir til og frá flugvelli. Ég svaf heila 10 tíma eftir það ferðalag. Kannski spilar líka inn í að sofa loksins í góðu rúmi, en rúmin sem við Angelien keyptum á sínum tíma eru svo hörð að Angelien valdi oftar en ekki að sofa frekar á sófanum (!)
Sunnudagur: Fylgdumst með Suður-Amerísku Carnivali í spænska hverfinu. Sá mann lamin í strætó og ákvað að halda mig í öruggu hverfunum framvegis…. Nóg um það. Fór í túristahöfnina Pier 39 og í 4víddar tívolí tæki (já, ég er krakki í mér!)
Mánudagur: Rölt um Kínahverfið og miðbæinn. Kíkt í nokkrar búðir… Kínahverfið hér er víst það stærsta í USA
Þriðjudagur: Leigðum bíl til að keyra upp í víndalinn Napa. Vorum hins vegar ekki í neinu drykkjustuði og keyrðum því frekar um til að skoða náttúruna, vínekrurnar sjálfar og stoppuðum meðal annars í Old Faithful Geyser. Hann var að sjálsögðu lítill og asnalegur í samanburði til aðal geysinn í Haukadal!
Sem sagt brilliant frí. Planið er að hlaða batteríin fyrir Íslandsförina!
Fyrir þá sem að vilja ná í mig þessa vikuna (sms eða símtöl) þá er ég með gemsann á mér: 1-551-998-2214.
Muna bara að California er 8 klst. á eftir Íslandi í tíma
Knús til allra,
Þóran

Athugasemdir